Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 144 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2013 samanborið við 151 milljarð á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 7 milljarða króna eða 4,7% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 85 milljarðar króna og dróst saman um 5% miðað við janúar til nóvember 2012. Verðmæti þorskafla nam 44 milljörðum, ýsu 11 milljörðum og verðmæti karfa og úthafskarfa nam tæpum 15 milljörðum.

Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 44 milljörðum króna í janúar til nóvember 2013 sem er um 4% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam tæplega 16 milljörðum og kolmunna tæplega 3 milljörðum króna. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 33% milli ára og var rúmlega 10 milljarðar króna. Aflaverðmæti makríls var rösklega 15 milljarðar króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2013.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.