Verð á íslenskum sjávarafurðum (meðaltal allra afurðaflokka) mælt í erlendri mynt lækkaði um 0,9% í ágúst síðastliðnum. Þetta byggir á útreikningi IFS greiningar m.v. tölur um framleiðsluverð í ágúst sem Hagstofan birti í morgun.
Afurðaverð á erlendum mörkuðum hefur verið í hægu hækkunarferli síðustu mánuðina. Nú hefur verðið hækkað um 4,1% síðustu 12 mánuði. Tölurnar undanfarna mánuði sýna að aðstæður á mörkuðum erlendis hafa náð ágætu jafnvægi. Þó er ástandið innan einstakra afurðaflokka misjafnt. Á heildina litið er afurðaverð ásættanlegt fyrir íslensku sjávarútvegsfyrirtækin að mati IFS greiningar.
Mjölverð hagstætt
Verð á fiskimjöli er enn hátt eða 1.530 USD/tonnið. Hæst fór verðið í rétt um 2.000 USD/tonnið fyrr á árinu. Mjölverðið er hátt í sögulegu samhengi og hagstætt fyrir framleiðendur. Lítið magn hefur hins vegar borist til fiskimjölsverksmiðja á Íslandi vegna lítillar veiði í loðnu og síld.
Verð á sjófrystum botnfiskafurðum er fremur hátt og er hagstætt fyrir íslensku sjávarútvegsfyrirtækin.
Verð á saltfiski virðist hafa náð þokkalegu jafnvægi. Efnahagsástand á mikilvægum mörkuðum er þó enn viðkvæmt, segir IFS greining.