Sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir rafmagn og heitt og kalt vatn eru sagðar vera mikilvægur áfangi Faxaflóahafna í vegferðinni í átt að snjallari og skilvirkari höfnum.

Að því er kemur fram í tilkynningu stefna Faxaflóahafnir að því að þessar sjálfafgreiðslustöðvar leysi smátt og smátt af hólmi núverandi fyrirkomulag. Til að byrja með verði horft til afgreiðslu á rafmagni til smábáta sem í dag sé leyst með sérstökum mælasnúrum með álestri.

„Í fyrsta áfanga voru settar upp þrjár sjálfafgreiðslustöðvar á Austurbakka, sem þjónusta báta og skip með rafmagn, heitt og kalt vatn. Aðgangur að rafmagni og vatni hefur hingað til krafist þess að hafnarstarfsmenn séu kallaðir til að virkja þjónustu á staðnum og skrá notkun handvirkt,“ segir í tilkynningunni.

Eykur þægindi og skilvirkni í senn

„Með Marineium og Waterstation lausninni frá danska fyrirtækinu Vikingegaarden A/S – Smart IoT solutions. Í gegnum Emiko stýrikerfið, getum við nú veitt viðskiptavinum Faxaflóahafna aðgang að skilvirku sjálfsafgreiðslukerfi. Þessar nýju stöðvar veita 24/7 aðgang að rafmagni, köldu vatni og heitu vatni – alla daga ársins.

Í gegnum Emiko stýrikerfið geta viðskiptavinir hafnarinnar nú pantað og stjórnað þjónustu í gegnum snjallforrit í símanum, með netgreiðslum, rauntíma fjarvöktun á notkun, skýrslugerð og viðvörunum. Þessi þróun eykur ekki aðeins þægindi viðskiptavina heldur bætir einnig skilvirkni, og mætir kröfum markaðarins um skilvirka miðlun á umhverfisspori vörunnar alla leið til neytenda,“ segir í tilkynningu Faxaflóahafna.