Grænlenski frystitogarinn Sisimiut sem gerður er út af Royal Greenland landaði í gær í Hafnarfirði afla að verðmæti 30 milljóna danskra króna, jafnvirði 578 milljóna íslenskra.

Mun þar vera um metafla að ræða hjá Sisimiut og var haldið upp á það með köku um borð eins og sjá má af meðfylgjandi mynd sem Ivan Durhuus Olsen skipstjóri póstaði á samfélagsmiðlum.
Aflinn sem landað var fékkst eftir 30 daga úthald á Dornbanka rétt vestan við miðlínu við Austur-Grænland. Samtals var landað 602 tonnum nettó og var uppistaðan, eða 575 tonn, þorskur og af gullkarfa voru 26 tonn. Aðrar tegundir voru í hverfandi magni.
Sisimiut lét úr höfn í Hafnarfirði strax eftir löndun í gær.