„Það hefur verið lítið að hafa síðustu tvo dagana og menn hafa eytt tímanum í leit. Það er þó aðeins tímaspursmál hvenær veiðin glæðist á nýjan leik því það á töluvert magn af makríl eftir að skila sér hingað austur að vestan,“ segir Róbert Axelsson, skipstjóri á Venusi NS, í viðtali við heimasíðu HB Granda en skipið kom til Vopnafjarðar snemma í gærmorgun með um 800 tonna afla.
„Það er kominn sá tími að síldin er farin að verða meira áberandi á miðunum en við reynum enn að einbeita okkur að makrílnum og sneiða í lengstu lög hjá síldinni. Það virðist vera lítið mál að finna síld hér fyrir austan um þessar mundir en hennar veiðitími er ekki kominn ennþá,“ segir Róbert jafnframt í viðtalinu en þótt reynt hafi verið að forðast síldina er hluti aflans nú ágæt síld.
Stærðin á makrílnum hefur hins vegar verið með vænsta móti og algeng meðalvigt í prufum upp á síðkastið er þetta 480-500 grömm og jafnvel meiri.
„Makrílveiðin var farin að tregast þegar við héldum áleiðis til lands og mér skilst á öllu að skipin hafi verið að leita að makríl í dag [mánudag]. Það er þó, að mínu mati, engin ástæða til að láta hugfallast. Það hefur verið mikið af makríl fyrir vestan og sá fiskur á að stórum hluta eftir að skila sér hingað austur,“ segir Róbert.