Um þessar mundir er lítið eftir af makrílkvóta þeirra skipa sem landa afla sínum í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Því er nú farið að huga að síldveiðum af fullri alvöru, að því er fram kemur í frétt á vef SVN. Síld hefur gjarnan verið meðafli hjá makrílveiðiskipunum og gera má ráð fyrir að makríll verði meðafli þegar öll áhersla verður lögð á síldveiðarnar. Norsk-íslenska síldin sem veiðst hefur að undanförnu hefur verið vel á sig komin og ætti að vera úrvalshráefni til vinnslu. Fyrir utan norsk íslensku síldina hefur nokkuð fengist af íslenskri sumargotssíld en hún er alls ekki eins eftirsóknarverð til vinnslu á þessum árstíma.
Bjarni Ólafsson AK er nú á landleið með um 500 tonna afla. Veiðisvæði skipsins var mun austar en það svæði sem makrílveiðarnar hafa helst farið fram á úti fyrir Austurlandi að undanförnu, en áformað var að Bjarni legði alla áherslu á að veiða síld. Aflinn er töluvert blandaður og þykir makrílhlutfallið vera of hátt.
Beitir NK er nú á miðunum og er ætlunin að hann veiði síld. Mun hann reyna fyrir sér mun norðar en hann hefur veitt makríl að undanförnu.
Börkur NK er að landa í fiskiðjuverið tæplega 650 tonnum. Megnið af aflanum er makríll.