Aflaverðmæti skipa Síldarvinnslunnar og dótturfélaga minnkaði um 19,4% á milli áranna 2015 og 2016 en aflinn minnkaði um 27,6% í tonnum talið og ræður þar mestu minni afli uppsjávarskipa. Heildaraflaverðmætið nam 11.615 milljónum króna á árinu 2015 en 9.358 milljónum á árinu 2016.
Dótturfélög Síldarvinnslunnar eru Gullberg ehf á Seyðisfirði sem gerir út togarann Gullver NS, Bergur-Huginn ehf í Vestmannaeyjum sem gerir út togarana Vestmannaey VE og Bergey VE og Runólfur Hallfreðsson ehf á Akranesi sem gerir út uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson AK.
Sjá nánar á vef Síldarvinnslunnar.