Sigurbjörg ÓF veiddi nú í vikunni 2 ½ kg. grálúðu úti af Seyðisfjarðardýpi sem merkt var af norsku Hafrannsóknastofnuninni norðvestan við Svalbarða á 79°,43 N og 08°,09 A þann 8. september 2008, að því er fram kemur á vef Ramma hf.
Vegalengdin sem grálúðan hefur farið er því a.m.k. 980 sjómílur ef hún hefði synt stystu leið en Friðþjófur Jónsson skipstjóri á Sigurbjörgu telur þó líklegast að lúðan hafi synt suður meðfram kantinum vestan við Noreg og síðan yfir til Íslands eða alls 1.400 sjómílur eða um 2.600 km. Sagðist Friðþjófur aldrei hafa gert sér í hugarlund að grálúða ferðaðist jafnlanga vegalengd og hér um ræðir, segir ennfremur á vef Ramma.