,,Það er frekar rólegt yfir þessu í augnablikinu. Það er verið að reyna að slíta eitthvað upp,“ sagði Ólafur Einarsson skipstjóri á Álsey VE þegar Fiskifréttir slógu á þráðinn til hans um klukkan hálf þrjú í dag en skipið var þá inni á miðjum Faxaflóa.
,,Við fengum óhrygnda loðnu í gær en nú er þetta meira karlsíli með kerlingu í bland. Aflinn er frekar rýr. Það vantar allan kraft í veiðarnar. Við erum greinilega á síðustu metrunum á endasprettinum,“ sagði Ólafur.
Allstór hópur loðnuskipa er á höttunum eftir loðnu þessa stundina, bæði í Faxaflóa og grunnt vestur af Snæfellsnesi.