„Það hefur verið fiskur hérna inni á firði en samt verið minna æti heldur en mér fannst í fyrra. Það var þægilegra að eiga við það þá hérna inni á firði,“ segir Hrólfur Sigurðsson, strandveiðimaður á Má SK á Sauðárkróki.

Hrólfur segir maí hafa verið mjög góðan. „Svo var náttúrlega bræludjöfull í byrjun júní,“ segir hann. „Ég er nú ekkert stressaður að taka alla þessa tólf daga, ég var ellefu daga í maí og það verða sennilega ekki nema átta dagar í þessum mánuði,“ svarar hann síðan spurður hvort hann hafi misst út einhverja róðrardaga vegna veðurs.

Heilt yfir kveðst Hrólfur hafa náð leyfilegum dagskammti þótt aðstæður séu ef til vill ekki eins hagstæðar og á síðasta ári.

Þeir verða níutíu ára sem er einhver kraftur í

„Þetta var alveg sérstaklega gott í fyrra hérna inni á firði. Vanalega höfum við þurft að fara norður fyrir Skagann. En í fyrra var meira æti hérna inni á firði og frekar þægilegt að ná skammtinum,“ segir Hrólfur. Nú reyni menn þá að fara norður fyrir Skagann og sé lengur að.

„Í fyrra var maður að taka sjö, átta tíma í róðri en ef maður fer þarna norður fyrir geta það verið tólf, þrettán tímar,“ segir Hrólfur. Það sé því nokkuð meira úthald. „Það er það náttúrlega fyrir gamla karla en ekki fyrir unga menn,“ segir hann og kveðst sjálfur vera orðinn dálítið fullorðinn, að nálgast sjötugt – en þó samt ekki orðinn það. „Þeir verða níutíu ára sem er einhver kraftur í og hafa áhuga á þessu.“.“

Þrælkun á grásleppu

Hrólfur nefnir að honum finnist allt of lítil nýliðun meðal strandveiðimanna. Hann haldi þó að breytingar á kerfinu ættu að verða til þess að fleiri bætist í hópinn.

„Á grásleppunni þá deyr þetta alveg út. Þar koma engir nýir inn enda láta menn ekki nú til dags bjóða sér svona þrælkun. Þetta er svo mikil vinna við úthaldið. Samt yrði ég miklu ánægðari ef þessi kvóti myndi halda. Þá veit maður að hverju maður gengur,“ ítrekar hann.

Fiskinn sem fengist hefur það sem af er segir Hrólfur vera hinn þokkalegasta. „Hann er í ágætis stærð og alls ekkert svo smár,“ segir hann. Aflanum sé landað á fiskmarkaði á Sauðárkróki og það sé þægilegt. Þaðan segir Hrólfur gerða út af alvöru um tíu strandveiðibáta, þar af tveir sem séu frá Hofsósi.

Frábær breyting

Aðspurður segist Hrólfur mjög ánægður með breytingar á strandveiðikerfinu. „Mér finnst frábært ef það myndi halda þannig að þetta yrði alla fjóra mánuðina. Ég held að það yrði ekki eins mikil sókn eins og ef þetta yrðu bara tveir mánuðir. Þá væru menn að reyna að nýta hvern einasta dag til að fá eitthvað inn því það kostar þó nokkuð að reka svona bát. En ef menn vita af því að  það séu fjórir mánuðir þá held ég að þeir séu ekkert að nýta alla þessa daga,“ segir  Hrólfur.

Skipstjórinn á Má SK heldur að stærri sjávarútvegsfyrirtækin þurfi ekki að hafa áhyggjur af stöðunni. „Ég held að við setjum ekkert stórútgerðina á hausinn, ég hef enga trú á  því.“