Atlantic Salmon Federation og North Atlantic Salmon Fund hafa sett á fót vefsíðu sem sögð er veita „aðgengilegar og áreiðanlegar upplýsingar fyrir blaðamenn, stefnumótendur, náttúruverndarsinna og hvern sem er um skaðleg áhrif laxeldis,“ eins og segir í tilkynningu.
„Á salmon.info má finna upplýsingar sem iðnaðurinn fjallar sjaldnast um. Til dæmis þarf meira en eitt kíló af villtum fiski til að framleiða eitt kíló af eldislaxi, og á hverju ári deyja tugir milljóna laxa í sjókvíum, sem er ótrúleg sóun á lífrænum auðlindum og dýralífi. Um er að ræða alvarleg áhrif frá sjókvíum á villta laxa og aðrar tegundir í hafinu,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Haft er eftir Elvari Erni Friðrikssyni, framkvæmdastjóra NASF á Íslandi, að íslenska þjóðin hafi vaknað og að yfirgnæfandi meirihluti hennar sé á móti opnu sjókvíaeldi. „Samt virðist vilji þjóðarinnar ekki rata í regluverk og lagaumgjörð um iðnaðinn. Á salmon.info geta ráðamenn og almenningur fengið sannleikann um sjókvíaeldi beint í æð, og skoðað allar þær ritrýndu heimildir sem eru þar á bakvið. Vonandi mun komandi löggjöf taka mið af gögnunum, vísindunum og vilja fólksins.“
Fréttatilkynninguna í heild má lesa hér að neðan:
Ný vefsíða varpar ljósi á skaðleg áhrif laxeldis með vísan í ritrýndar rannsóknir
Salmon.info byggir á yfir 300 vísindalegum heimildum sem sýna neikvæð áhrif laxeldis
- júní 2025 — Atlantic Salmon Federation og North Atlantic Salmon Fund kynna með stolti nýja vefsíðu, salmon.info, sem veitir aðgengilegar og áreiðanlegar upplýsingar fyrir blaðamenn, stefnumótendur, náttúruverndarsinna og hvern sem er um skaðleg áhrif laxeldis, iðnaðar sem framleiðir einn vinsælasta fisk heims til matseldar og neyslu.
„Laxeldisiðnaðurinn heldur því fram að hann framleiði sjálfbæra próteingjafa með minniháttar umhverfisáhrifum,“ segir Neville Crabbe, samskiptastjóri Atlantic Salmon Federation. „Okkar markmið með salmon.info er að veita heildstæða og staðreyndamiðaða mynd af þeim þáttum sem iðnaðurinn kýs að ræða ekki, þannig að neytendur geti tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir velja eldislax.“
Á salmon.info má finna upplýsingar sem iðnaðurinn fjallar sjaldnast um. Til dæmis þarf meira en eitt kíló af villtum fiski til að framleiða eitt kíló af eldislaxi, og á hverju ári deyja tugir milljóna laxa í sjókvíum, sem er ótrúleg sóun á lífrænum auðlindum og dýralífi. Um er að ræða alvarleg áhrif frá sjókvíum á villta laxa og aðrar tegundir í hafinu.
„Almenningur hefur aðeins fengið að heyra eina hlið málsins í of langan tíma þegar kemur að eldislaxi. Nú höfum við einn áreiðanlegan vettvang, salmon.info, sem sameinar bestu vísindi hvers tíma til að auka skilning blaðamanna, stefnumótenda og áhyggjufullra borgara á laxeldi í opnum kvíum. Þetta er löngu tímabært tól til gagnsæis og mikilvægt skref fram á við fyrir verndun hafsins,“ segir Ian Huschle, stjórnarmaður í North Atlantic Salmon Fund.
Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri NASF á Íslandi bætir við: „Íslenska þjóðin hefur vaknað og yfirgnæfandi meirihluti hennar er á móti opnu sjókvíaeldi. Samt virðist vilji þjóðarinnar ekki rata í regluverk og lagaumgjörð um iðnaðinn. Á salmon.info geta ráðamenn og almenningur fengið sannleikann um sjókvíaeldi beint í æð, og skoðað allar þær ritrýndu heimildir sem eru þar á bak við. Vonandi mun komandi löggjöf taka mið af gögnunum, vísindunum og vilja fólksins.“
Helstu eiginleikar og upplýsingar sem má finna á salmon.info:
- Aðgangur að yfir 300 ritrýndum heimildum sem fjalla ítarlega um áhrif opinna sjókvía.
- Aðstoð gervigreindar sem getur leitað í gagnagrunni síðunnar og svarað spurningum notenda.
- Skýr og notendavæn hönnun með greinargóðu yfirliti um öll helstu málefni.
Hægt er að heimsækja www.salmon.info til að fræðast og fá nánari upplýsingar.
Atlantic Salmon Federation vinnur að vernd og endurheimt villtra laxastofna og styður við sjálfbæra nýtingu. Sjá nánar á www.asf.ca
North Atlantic Salmon Fund stuðlar að verndun líffræðilegrar fjölbreytni í hafinu og villtra laxastofna. Sjá nánar á www.nasf.is