Skinney-Þinganes hefur samið um sölu uppsjávarskipsins Jónu Eðvalds SF-200 til Horneyjar ehf. í Vestmannaeyjum.
„Skipið verður selt án aflahlutdeilda sem hafa verið fluttar til annarra skipa Skinneyjar-Þinganess hf. Umsamið söluverð er kr. 400.000.000 án veiðarfæra og er reiknað með að skipið verði afhent innan skamms,“ segir í fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar.
„Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að skipið sé selt og mun sveitarfélagið ekki nýta forkaupsrétt á skipinu,“ segir í samþykkt bæjarráðsins frá í gær.
Horney ehf. er fyrirtæki sem skráð var nú í desember og er í fyrirtækjaskrá sagt fást við leigu á búnaði til flutninga á sjó- og vatnaleiðum.
Ágætt að eiga varaskip
„Þetta er félag í sameiginlegri eigu Skinneyjar-Þinganess og Ísfélagsins,“ segir Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins, sem ásamt Aðalsteini Ingólfssyni, forstjóra Skinneyjar-Þinganess, er skráður eigandi Horneyjar.
„Horney mun eiga Jónu Eðvalds sem mun fá nafnið Júpiter VE. Hugmyndin er að þetta félag eigi skipið sem verði síðan gert út til skiptis af eigendum félagsins, það er að segja Ísfélaginu og Skinney-Þinganesi. Þetta er hagræðing má segja; í staðinn fyrir að vera með tvö skip þá erum við með eitt skip saman. Það er ágætt að eiga varaskip ef menn lenda í stórum kvótum eða ef upp koma einhverjar óvæntar aðstæður,“ segir Stefán.