„Þetta er búið að vera upp og ofan hjá okkur í þessum túr en segja má að þegar veðrið er skaplegt þá sé aflinn góður. Núna er vitlaust veður, sannkölluð haugabræla, en við dólum hér í Skerjadjúpinu og vonandi náum við einu holi áður en haldið verður til hafnar,“ sagði Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey AK, laust upp úr hádeginu í gær þegar skrifari á vefsíðu HB Granda náði tali af honum.

Akurey kom til Reykjavíkur í morgun með um 120 tonn af blönduðum afla en ufsa vantaði alveg í þann skammt, að því er segir á vef HB Granda.

„Það var rólegt hjá okkur fyrsta daginn en síðan þá hefur aflinn verið ágætur. Við höfum lagt áherslu á að veiða ufsa en sá fiskur hefur varla sést í túrnum. Ufsaveiðin hefur verið ágæt, heilt yfir, en  hún er ákaflega blettótt. Ef maður er ekki á réttu róli þá er ufsaaflinn lítill en svo koma tímar þegar maður hittir á ufsann dag eftir dag,“ segir Eiríkur ennfremur.

Hann segir þó að ufsinn sé ekki einn um að koma mönnum á óvart.

„Við þurfum líka að veiða þorsk og það lá beinast við að fara í Jökuldjúpið þar sem hefur verið mokveiði í margar vikur. Þar var  engan þorsk að fá þegar við komum á svæðið. Norðlendingarnir hafa legið á þessu svæði og fengið góðan afla. Togarar frá Sauðárkróki hafa t.a.m. gert út frá Grundarfirði og Eyfirðingarnir hafa sömuleiðis verið drjúgir. Togarar frá Vestmannaeyjum koma reglulega en ég hef ekki orðið var við Austfjarðatogarana hér á suðvesturmiðum.“

Haft er eftir Eiríki að þótt Jökuldjúpið hafi brugðist að þessu sinni þá sé þorsk víðar að finna. Því sé þó ekki að heilsa á hinu fornfræga hrygningarsvæði á Selvogsbankanum. Þar sé nú lítið um þorsk.

Sjá nánar hjá HB Granda.