Samskip og Arnarlax hafa skrifað undir samstarfssamning um að Samskip annist útflutning á afurðum Arnarlax frá Bíldudal og innflutning á aðföngum fyrir fyrirtækið. Siglingarnar hófust í gær þegar Skálafell kom í sína fyrstu ferð til Bíldudals, en langt er um liðið síðan þaðan hafa verið beinar millilandasiglingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum.

Flutningur fyrir Arnarlax fer inn á svonefnda Suðurleið í nýju siglingakerfi Samskipa. Flutningaskip Samskipa hefur vikulega viðkomu á Bíldudal á miðvikudögum. Þaðan verður siglt um Reykjavík og komið til Hull í Bretlandi á sunnudögum. Þaðan er svo siglt áfram til Rotterdam og komið þangað á mánudegi.

Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa á Íslandi, segist binda milar vonir við þessa nýju þjónustu sem nú er í boði fyrir innflytjendur á ferskum fiski.

„Við fögnum því sérstaklega að fá Arnarlax í viðskipti og að geta nú boðið fyrirtækjum á Vestfjörðum afburðatengingu við mikilvæga markaði í Evrópu og þaðan áfram um allan heim í viku hverri.“

Kristian Matthiasson forstjóri Arnarlax, segir samninginn mikilvægan þátt í áframhaldandi uppbyggingu Arnarlax.

„ Við afhendum ferska hágæðavöru inn á kröfuharða markaði og erum þar að keppa við fyrirtæki sem eru stærri og nær markaðnum. Þá er gríðarlega mikilvægt að flutningsleiðin sé bæði örugg, fagleg og hagkvæm.“