Í morgun var kveðinn upp dómur í Hæstarétti Íslands, þar sem tekin var til greina krafa Stillu útgerðar ehf., KG fiskverkunar og Guðmundar Kristjánssonar um að ákvörðun hluthafafundar í Vinnslustöðinni hf. 21. september 2011, um samruna Ufsabergs-útgerðar ehf. við Vinnslustöðina hf., væri  ógild.

Dómurinn klofnaði í afstöðu sinni og dæmdu þrír dómarar af fimm að taka bæri kröfuna um ógildingu til greina en tveir dómarar skiluðu sératkvæði. Í héraðsdómi var ekki fallist á dómkröfur Stillu-útgerðar ehf. og Guðmundar Kristjánssonar.

Samruni Ufsabergs-útgerðar ehf. og Vinnslustöðvarinnar hf. hefur þegar farið fram.

Í frétt frá Vinnslustöðinni segir að farið verði yfir dóminn á næstu dögum með tilliti til þeirra annmarka sem meirihluti Hæstaréttar telji að verið hafi á samþykkt hluthafafundarins haustið 2011. Ákvörðun verði síðan tekin um framhaldið.