Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Sjómannasamband Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning til næstu tveggja ára. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, eitt aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands, tók samningsumboð sambandsins til baka nú undir kvöld og það félag stendur því utan við gerðan kjarasamning. Þá hafa ekki tekist samningar við Sjómannafélag Íslands.
Þetta kemur fram í frétt á vef SFS í gærkveldi. Áður hafði náðst samningur við vélstjóra. Um efnisatriði samninganna kemur þetta fram á vef SFS: „ Í fyrsta lagi náðu aðilar saman um fiskverðsmál. Þar er um að ræða málefni sem ágreiningur hefur staðið um til margra ára. Sú meginregla hefur verið sett, að í viðskiptum á milli skyldra aðila, þ.e. útgerðar og vinnslu í eigu sömu aðila, skuli fiskverð að jafnaði taka mið af 80% af markaðsverði á fiskmarkaði. Að því er viðskipti með uppsjávarfisk varðar, hefur gagnsæi verið aukið, samskipti útgerða og áhafna vegna fiskverðssamninga verið styrkt og upplýsingagjöf til eftirlitsaðila verið formfest. Í öðru lagi var samið um hækkun kauptryggingar, í þriðja lagi var samið um aukinn orlofsrétt, í fjórða lagi var samþykkt 130% aukning á fjármunum til kaupa á hlífðarfötum og í fimmta lagi var um það samið að fram skyldi fara óháð úttekt á öryggi og hvíldartíma sjómanna. Í sjötta lagi urðu aðilar ásáttir um að svokallað nýsmíðaákvæði yrði tímabundið frá 1. desember 2023."
Hluti skipaflotans getur haldið til veiða á næstu dögum, þrátt fyrir að verkfall Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur og Sjómannafélags Íslands standi enn. Viðræðum SFS og síðargreinda félagsins verður fram haldið í fyrramálið og SFS bindur vonir við að samningar takist við það félag, segir ennfremur á vef SFS.
Sjá einnig fréttir RÚV um málið:
Tvö félög ósátt við samninginn
Valmundur: Lengra verður ekki komist
Heiðrún Lind: Búin með stærstu áfangana
Jens Garðar: Góður samningur fyrir báða aðila