Samherji hefur hætt rekstri frystitogarans Víðis EA og sagt upp áhöfn skipsins. Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs fyrirtækisins segir þetta nauðsynleg aðgerð til að bregðast við kvótaskerðingu en fyrirtækið hyggist fjölga í flota sínum á næsta fiskveiðiári.
Kristján segir ákvörðunina um að hætta með Víði EA hafa verið erfiða enda hafi skipið reynst vel í gegnum árin. Jafnframt kemur fram í máli hans að fleiri breytingar séu fyrirhugaðar hjá Samherja á næstu mánuðum.
Víðir EA er um átta hundruð tonna fiskveiðiskip og var smíðað í Póllandi árið 1973.Víðir er einn þeirra fimm togara sem ríkisstjórn Íslands lét smíða á þessum árum en honum var breytt í frystitogara árið 1992. Hann hefur verið í rekstri Samherja síðastliðin tuttugu ár.
Skipið kom úr sinni síðustu veiðiferð í lok júní en það verður selt úr landi til niðurrifs á næstunni.
Frá þessu er skýrt á fréttavef RUV.