Samherji skilaði methagnaði á síðasta ári. Hann nam 97,8 milljónum evra eða um 15,7 milljörðum króna. Til samanburðar nam hagnaðurinn 8,8 milljörðum króna árið 2011 og jókst hagnaðurinn því um 79% á milli ára mælt í krónum.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir í samtali við Viðskiptablaðið sem kom út í dag samvinnu starfsfólks Samherja og útfærslu góðra hugmynda hafa skilað þessari niðurstöðu. Veiðar dótturfélaga í Barentshafi hafi gengið mjög vel auk þess sem þetta sé fyrsta heila rekstrarárið þar sem útgerðarfélag Akureyringa sé inni í uppgjörinu.
Ítarlega er fjallað um uppgjör Samherja í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta nálgasta blaðið í heild hér að ofan á vefsíðunni undir liðnum tölublöð .