Breska sjávarútvegsfyrirtækið UK Fisheries, sem Samherji á helmingshlut í á móti Parlevliet & Van der Plas, hefur keypt franska sjávarútvegsfyrirtækið Euronor. Það félag stundar öðru fremur veiðar og vinnslu úr ufsa og þorski.

Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Þetta eru önnur kaup UK Fisheries á skömmum tíma, að því er greint var frá á vef Intrafish á dögunum. Hinn 17. desember sl. keypti UK Fisheries spænska fyrirtækið Pesquera Ancora sem áður var í eigu norska félagsins Aker Seafood. Þar ræður norski athafnamaðurinn Kjell Inge Rökke ríkjum.

Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja og jafnframt eigandi þriðjungshluta í fyrirtækinu, segir að þessi félög séu með samtals um tíu skip í rekstri. Spænska félagið er með þrjú skip, þó ekki allt árið um kring, sem veiða innan kvótakerfis ESB, einkum í Barentshafi og við Svalbarða.

Euronor hefur verið með sjö skip, þar af þrjá frystitogara, á sínum snærum. Fyrirtækið er einkum stórt í veiðum og vinnslu á ufsa. Það framleiðir um 16 þúsund tonn árlega inn á ufsamarkað.

Kristján vildi ekki tjá sig um hver verðmiðinn væri á þessum fyrirtækjum, að öðru leyti en því að hann teldi hann vera ásættanlegan.