Fyrstu sex mánuðina 2013 voru fluttar út vörur fyrir 293,9 milljarða króna en inn fyrir 272,4 milljarða króna fob (293,9 milljarða króna cif), að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Útflutningur sjávarafurða nam 129,9 milljörðum á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 132,3 milljarða.
Fyrstu sex mánuði ársins 2013 var verðmæti vöruútflutnings 20,5 milljörðum eða 6,5% minna á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52% alls útflutnings og var útflutningur þeirra 9,1% minni en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,8% minna en á sama tíma árið áður. Samdráttur í útflutningi á iðnaðarvörum og sjávarafurðum er að hluta til vegna verðlækkana á afurðaverði.