Hafrannsóknastofnun ráðleggur að leyfðar verði veiðar á 167 tonnum í Arnarfirði fiskveiðiárið 2016/2017. Í Ísafjarðardjúpi eru ráðlagðar veiðar á 484 tonnum í Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2016/2017. Þetta kemur fram í frétt frá Hafró.
Hér er um töluverðan samdrátt að ræða en á síðasta fiskveiðiári var úthlutað 237 tonnum af rækju í Arnarfirði og 663 tonnum í Ísafjarðardjúpi.
Þar sem magn ýsuseiða var yfir viðmiðunarmörkum í Ísafjarðardjúpi ráðleggur Hafrannsóknastofnun að rækjuveiðar hefjist ekki á því svæði fyrr en að magn þeirra hefur minnkað á veiðisvæðum rækjunnar.
Stofnvísitala rækju í Arnarfirði var undir meðallagi og var helsta útbreiðslusvæði rækju innst í firðinum. Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi mældist einnig undir meðallagi. Líkt og
undanfarin ár var mest magn rækju innst í Djúpinu. Rækjustofnar á öðrum svæðum eru enn í lægð og ekki er lagt til að veiðar verði stundaðar á þeim svæðum fiskveiðiárið 2016/2017. Nánari upplýsingar má nálgast hér hafogvatn/stofnmat_innfjraekja16.pdf .