Sala HB Granda á frystitogaranum Venusi HF 519 (smíðaður á Spáni árið 1973) til grænlenska félagsins Northern Seafood ApS, sem fram fór fyrir rúmu ári, er gengin til baka. Söluverðið var 320 milljónir króna sem greiðast skyldi á næstu árum.

Í frétt á vef HB Granda segir að kaupin gangi til baka vegna vanefnda kaupanda en það var mat stjórnenda HB Granda að farsælast væri að taka við skipinu og leita nýs kaupanda. Samhliða móttöku skipsins er matsverð þess fært niður um 85 milljónir króna í bókum félagsins.