Samtök atvinnulífsins (SA) hafa  kynnt ríkisstjórninni og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tillögu til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi. SA segir að tillagan feli í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið sé verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkana í þessum efnum. SA leggur til að gerð verði sú grundvallarbreyting að í stað þess að afnot aflahlutdeildar séu ótímabundin verði gerðir samningar á milli ríkisins og útgerða um tímabundin afnot útgerða af aflahlutdeild.

Lagt er til að afnotatíminn verði til a.m.k. 35 ára. Samningarnir feli í sér að þegar hluti samningstímans er liðinn, t.a.m. þegar hann verður hálfnaður, þá hafi útgerðir rétt til framlengingar þannig að jafn langur tími og liðinn er bætist við þann tíma sem eftir er. SA segir að með þessu móti væri tekið upp sambærilegt fyrirkomulag í sjávarútvegi og tillögur hafa verið um varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins.

Þá er lagt til að lagaákvæði um veiðigjald verði tekin til endurskoðunar þannig að stofn þess verði hagnaður útgerðarinnar í stað reiknaðrar framlegðar eins og nú er.

,,Á Íslandi er rekinn öflugur, sjálfbær og arðbær sjávarútvegur.  Á íslensk útgerðarfyrirtæki er lagt sérstakt gjald, svonefnt veiðigjald, hátt í þrjá milljarða króna á fiskveiðiárinu 2010 - 2011.  Víða er sjávarútvegur ríkisstyrktur um háar fjárhæðir.  Mikilvægt er að íslenskur sjávarútvegur geti áfram lagt sem mest til samfélagsins og því er nauðsynlegt að rekstrarskilyrði hans verði sem best,” segir í tilkynningu SA.