Fiskistofa hefur lokað fyrir rafrænar millifærslur vegna rangra skráninga. Sagt er að unnið sé hörðum höndum að því að leysa vandann.
„Við keyrslu í kerfum síðasta sunnudag eru landanir síðasta fiskveiðiárs vantaldar. Þetta gerir það að verkum að skráning aflamarks frá síðasta ári er í einhverjum tilfellum röng.
Á meðan skráning er röng á vef Fiskistofu verða skipstjórar að hafa vara á ef nota á heimildir fluttar frá síðasta ári. Til að koma í veg fyrir að skip lendi í umframafla vegna millifærsla þá hefur verið lokað fyrir rafrænar millifærslur. Eftir sem áður verður hægt að millifæra með því að senda inn millifærslueyðublað á [email protected].
Unnið er hörðum höndum að því að leysa vandann og mun Fiskistofa setja inn tilkynningu þegar vandinn hefur verið leystur og opnað hefur verið fyrir rafrænar millifærslur á ný,“ segir á fiskistofa.is.
Uppfært: Opnað hefur verið aftur fyrir rafrænar millifærslur. „ Búið er að laga þá villu sem upp kom í kerfum Fiskistofu og því er búið að opna aftur fyrir millifærslur,“ segir fiskistofa.is.