Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við skipstjórana á krókaaflamarksbátnum Fjölni GK um veiðina í maí og júnímánuði. Skipstjórarnir, þeir Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson, létu vel af maímánuði en sögðu að júnímánuður væri yfirleitt á meðal slökustu mánaða ársins hvað veiði varðar.

Fram kom í viðtölum við skipstjórana að maímánuður hefði byrjað afar vel en þá var lögð áhersla á þorskveiði á miðum skammt frá heimahöfninni í Grindavík. Þegar leið á mánuðinn og veiðin fór að dragast saman var haldið austur til Hornafjarðar og róið þaðan um tíma. Fyrst var landað á Hornafirði þann 18. maí. Fljótlega færðu Fjölnismenn sig um set og hófu að róa frá Breiðdalsvík. Þaðan var róið um tíma og var aflinn góður. Aðallega fékkst þorskur en hins vegar gekk erfiðlega að finna ýsu sem í upphafi var fyrst og fremst ætlunin að veiða á þessum slóðum.

Suður á löngu

Að því kom að báturinn var kallaður suður til að veiða löngu. Róið var frá Grindavík og var landað eftir fyrsta löngutúrinn þann 27. maí. Langan var aðallega veidd um 25 mílur suðaustur frá Grindavík, á milli Grindavíkurdýpis og Selvogsbankans. Það gekk glimrandi vel að ná í lönguna og oftast var komið að landi með fullan bát að loknum tveggja lagna túr. Sögðu skipstjórarnir að meira væri af löngu í ár á hefðbundnum miðum en hefði verið alllengi.

Um 10. júní var löngukvótinn búinn og um miðjan mánuðinn hélt Fjölnir austur til Neskaupstaðar og hóf að róa þaðan. Aflinn fyrir austan hefur mest verið þorskur og veiðin heldur róleg. Þegar þetta er ritað er Fjölnir í róðri og að honum loknum verður væntanlega haldið suður því ráðgert er að báturinn fari í slipp þann 7. júlí. Gera má ráð fyrir mánaðarstoppi vegna slippsins en að þeim tíma loknum er stefnt að því að báturinn komi á ný austur til Neskaupstaðar og rói þaðan í haust og fram á vetur.

Sögðu þeir Kristinn og Júlíus Magnús að afli Fjölnis í maímánuði hefði verið um 200 tonn en í júnímánuði yrði hann um 100 tonn.