Ísfell ehf. í Hafnarfirði og Fiskeldisþjónustuna ehf. hafa sótt um lóð fyrir þvotta- og þjónustustöð fyrir fiskeldispoka á Þingeyri. Fyrirtækin eru búin að fjárfesta í þvottavél frá Noregi sem getur þvegið 160 m fiskeldispoka en það eru stærstu pokarnir sem eru í notkun hér við landi.
Ísfell er öflugt fyrirtæki á sviði veiðarfæraþjónustu og sölu á útgerðarvörum og með starfstöðvar víða um land en Fiskeldisþjónustan er rekin af ísfirska kafaranum Kjartani Jakobi Haukssyni. Sagt er frá þessu á www.bb.is.
„Ef leyfismálin ganga hratt og vel fyrir sig ásamt öðrum undirbúningi þá er stefnt að því að hefja starfsemi á Þingeyri í haust,“ segir Magnús Eyjólfsson, markaðsstjóri Ísfells.
Þingeyri er valin þar sem þorpið er miðsvæðis og hentar til að þjónusta fiskeldi á suður- og norðursvæði Vestfjarða.
Aðspurður hvort að starfsemin krefjist húsnæðis segir Magnús svo vera. „Þvottavélin sjálf getur staðið úti, þetta er í raun risatromla. En annað sem fylgir þessu, eins og yfirferð og viðgerðir á möskvum er betra að gera inni við. Hvað við gerum í húsnæðismálum á eftir að koma í ljós.“
Fiskeldisþjónustan hefur upp á síðkastið þrifið sjókvíar með búnaði sem þrífur þær án þess að þurfi að taka þær á land. Magnús segir að samkvæmt reglugerð verði að taka alla poka á land á 18 mánaða fresti til yfirferðar og vottana.