Viðskiptablað danska dagblaðsins Berlingske hefur birt lista yfir 100 ríkustu fjölskyldur í Danmörku. Á þessum lista eru fjórar fjölskyldur í sjávarútvegi. Hér eru á ferðinni útgerðarmenn sem eru Íslendingum í sjávarútvegi vel kunnir. Frá þessu er greint í nýjustu Fiskifréttum.

Kristian Barslund Jensen og fjölskylda hans ráða yfir mestum auði í sjávarútvegi í Danmörku og er í sæti 50 yfir ríkustu fjölskyldurnar, samkvæmt lista Berlingske. Kristian auðgaðist á rækjuveiðum. Fyrirtækjasamstæða hans, Ocean Prawns, gerir út nokkra rækjutogara sem veiða við Kanada, Grænland og Svalbarða. Eignir Barslund Jensen eru metnar á 2,1 milljarð danskra króna, eða um 36 milljarða íslenska.

Ocean Prawns er helmingseigandi á móti Reyktal AS að útgerðarfélagi sem gerir út rækjutogarann Reval Viking. Reyktal þjónusta á Íslandi annast útgerð Reval Viking og skipstjóri á skipinu er íslenskur.

Hinir þrír útgerðarmennirnir á listanum eru Henning Kjeldsen, útgerðarmaður Gitte Henning sem ræður yfir 10% af kvóta Dana. Gullak Arngrimsson Madsen sem gerir út uppsjávarskipið Ruth, sem er stærsta fiskiskip Dana, og loks Jens Salling, annar af aðaleigendum Polar Seafood Greenland.

Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.