Reyna á að ná vélbátnum Kára AK-033 af strandstað í Hvammsvík í Hvalfirði á síðdegisflóði í dag um kl. 1600. Dráttarbáturinn Magni frá Reykjavík verður notaður til verkefnisins en varðskipið Þór er á svæðinu og áhöfn skipsins hefur aðstoðað við undirbúning og mun aðstoða við verkið eftir þörfum. Varðskipið getur ekki athafnað sig inn á víkinni í námunda við strandstaðinn það sem aðgrunnt er og þröngt þar sem báturinn er strandaður, að því er fram kemur á vef Gæslunnar.
Kári AK-033 strandaði í Hvammsvík að norðanverðu síðastliðinn laugardagsmorgun eftir að hafa dregið legufærin talsverða leið undan ofsaveðrinu sem gekk yfir. Tilraun var gerð á sunnudag til að draga bátinn á flot af björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Ásgrími S. Björnssyni. Þrátt fyrir nokkrar tilraunir náðist báturinn ekki út enda kominn talsvert hátt upp í fjöruna.
Í aftakaveðrinu sem gerði aðfaranótt mánudags færðist Kári AK-033 lengra upp í fjöruna en beðið hefur verið færis og aðstæðna til að draga hann á flot. Straumur fer stækkandi þannig að á flóði fellur sjór meira að honum sem gerir björgun vænlegri og þar sem ekki spáir hagstæðu veðri næstu daga er talið ákjósanlegast að gangast í verkefnið í dag.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar, Umhverfisstofnunar, Faxaflóahafna, tryggingafélags bátsins og fulltrúi eigenda funduðu um aðgerðir í morgun og varð það niðurstaðan að reyna björgun í dag.
UPPFÆRT: Nú klukkan 15:05 var Kári AK-033 dreginn af strandsstað, um klukkutíma fyrir háflóð. Aðgerðir gengu mjög vel og er áætlað að báturinn verði dreginn annað hvort til Akraness eða Reykjavíkur en ljóst er að gera þarf við stýrisblað og skrúfu bátsins.