Bjarni Ólafsson AK hélt til kolmunnaveiða frá Neskaupstað um miðnætti síðastliðna nótt. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra og spurði hvort veiðar væru hafnar.
„Já, við vorum að kasta hérna á landgrunnskantinum austur af Glettinganesgrunninu. Það er haugasjór en hann fer brátt að ganga niður og verður væntanlega komin blíða þegar líður á daginn. Það er nú ekki mikið að sjá hérna, aðeins smáryk sem við ætlum að prufa að draga í. Við erum líka að prófa nýtt troll, við þurfum að læra á það. Það er enginn annar bátur á kolmunnaveiðum hér um slóðir. Hoffellið var hérna fyrir nokkrum dögum en það kom lítið út úr því hjá þeim. Þetta kemur allt í ljós og skýrist í kvöld. Það þýðir ekkert að draga á nóttunni því þá dreifir kolmunninn sér. Það er töluvert eftir af kolmunnakvótanum og það verður að reyna. Vonandi gengur þetta upp hjá okkur,“ segir Þorkell í viðtalinu.