Fyrsti makríll vertíðarinnar kom í hús Vinnslustöðvarinnar í gærmorgun þegar Huginn VE kom til Eyja með rúmlega 1.000 tonn.

Þetta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar þar sem segir frá því að aflinn hafi verið aðeins blandaður og makríll verið um 80 prósent.

„Fékkst megnið af honum í Smugunni en á heimleiðinni fengust um 200 tonn af hreinum makríl í íslensku lögsögunni. Gæði makrílsins eru misjöfn, en elsti makríllinn er tæplega viku gamall. Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar reynir nú að koma sem mestum hluta aflans í frystingu og hámarka þannig verðmæti hans,“ segir á vsv.is

Þá segir af öðrum skipum á miðunum að Gullberg og Sighvatur Bjarnason sé við veiðar SA af landinu. „Lítill kraftur er í veiðunum, bara svona rjátl.“