Rammi hf. í Fjallabyggð hefur samið um smíði á 80 metra löngum frystitogara hjá Tersan-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi fyrir jafnvirði 5,5 milljarða króna. Gert er ráð fyrir að hann verði afhentur í desember 2016.

Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma, segir að tími hafi verið kominn til að endurnýja skipakost fyrurtækisins, en nýja skipið leysir af hólmi frystitogarana Mánaberg, 43 ára, og Sigurbjörgu, 36 ára, að því er fram kemur í umfjöllun um skipasmíði þessa í Morgunblaðinu í dag.

Í áhöfn nýja skipsins verða 34 menn í stað 26 manna á gömlu togurunum. S

Frystitogurum hefur fækkað í flotanum undanfarin ár, en Ólafur segist sannfærður um að fyrirtækið sé á réttri leið með því að endurnýja skipakostinn með nýju og fullkomnu frystiskipi. Sem rök nefnir hann samsetningu aflaheimilda fyrirtækisins, samfélagslegar aðstæður í Fjallabyggð og markaði sem Rammi hafi byggt upp erlendis fyrir afurðir sínar.

Nýja skipið verður tæknilega fullkomið og býður upp á frekari fullvinnslu afurða um borð, sambærilegt við fullkomin frystihús í landi, að sögn Ólafs. Sjálfvirkni á vinnsluþilfari verður meiri en nú þekkist á flakafrystitogurum. Rými verður fyrir allt að 1.200 tonn af afurðum á brettum í 1.900 rúmmetra frystirými. Í skipinu verða líka mjöl- og umbúðalestir og í því verður ný gerð af fiskimjölsverksmiðju frá Héðni.