Hafrannsóknastofnun leggur til að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2024/2025 verði ekki meira en 169 tonn og að rækjuveiðar verði ekki heimilaðar í Ísafjarðardjúpi.

Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar sem segir þessa ráðgjöf vera veitta í samræmi við varúðarsjónarmið.

Undir mörkum í Ísafjarðardjúpi

„Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hefur verið nokkuð stöðug frá árinu 2018. Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2024 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011. Vísitala þorsks var sú þriðja hæsta sem mælst hefur frá árinu 1994,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar.

Þá segir að stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi hafi mælst lág og verið hún undir skilgreindum viðmiðunarmörkum. „Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004 og frá árinu 2020 hafa þær verið mjög háar í sögulegu samhengi.“

Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Arnarfirði og veiðar má nálgast hér.

Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Ísafjarðardjúpi og veiðar má nálgast hér.

Forsendur ráðgjafar má finna hér fyrir Ísafjarðardjúp og hér fyrir Arnarfjörð.