Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Poul Michelsen, utanríkisráðherra Færeyja, ræddu samskipti ríkjanna á fundi sínum í utanríkisráðuneytinu 19. mars 2018.
Sérstaklega ræddu þeir hina nýju fiskveiðilöggjöf sem tók gildi í Færeyjum byrjun árs 2018. Sú löggjöf útilokar erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi, þar á meðal íslenskar, og stangast þar með á við Hoyvíkursamninginn, fríverslunarsamning sem Ísland og Færeyjar gerðu árið 2005.
Ráðherrarnir ræddu í því samhengi framkvæmd Hoyvíkursamningsins, en í færeysku lögunum er gert ráð fyrir því að hann verði að einhverju leyti tekinn til endurskoðunar.
Samkvæmt færeysku löggjöfinni er eignarhald íslenska útgerðarfélagsins Samherja í færeyska útgerðarfélaginu Framherja í uppnámi, en í lögunum er Íslendingum gefinn sjö ára frestur.
Nánar má lesa um nýju færeysku fiskveiðilöggjöfina í frétt sem birtist í Fiskifréttum í lok janúar .