Á sérstökum hátíðarfundi í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands, sem haldinn verður á Þingvöllum 18. júlí, mun Alþingi samþykkja þingsályktunartillögu um verkefni sem ráðast á í.

Annað þeirra er smíði nýs rannsóknaskips fyrir Hafrannsóknastofnun. Samkvæmt tillögunni, sem hefur verið birt á vef Alþingis , er gert ráð fyrir að 300 milljónum króna verði varið í hönnun og undirbúning smíðarinnar á árinu 2019 og 3,2 milljörðum króna í smíði skipsins á árunum 2020-2021.

Nýtt rannsóknaskip mun leysa Bjarna Sæmundsson af hólmi, sem smíðaður var árið 1970, og mun gerbreyta og bæta aðstöðu til rannsókna.