Ráðstefnan er sú 23. í röðinni og var þema hennar að þessu sinni „Sjálfbær stjórnun auðlinda hafsins“. Hún var haldin í Þórshöfn í Færeyjum mánudaginn 27. ágúst og þriðjudaginn 28. ágúst.

„Hafa þessar ráðstefnur í gegnum árin nýst vel sem umræðuvettvangur fyrir ráðherrana um fiskveiði og fiskveiðistjórnun,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. „Í ræðu sinni á fundinum lagði Kristján Þór sérstaka áherslu á sjálfbæra nýtingu og vernd hafsvæða og mikilvægi þess að þjóðir við Norður-Atlantshaf komi sér saman um hvernig megi nýta deilistofna með sjálfbærum hætti. Þá lagði hann jafnframt áherslu á mikilvægi hafrannsókna og að efling þeirra væri í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Íslands.“

Þá er greint frá því að Kristján Þór hafi á þriðjudag átt tvíhliða fund með m.a. Karmenu Vella, framkvæmdastjóra umhverfis- og sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu.

„Á fundinum var m.a. rætt um hvernig þjóðir heimsins geti komið sér saman um sjálfbæra nýtingu hafsvæða og hvernig koma megi á samningum um nýtingu deilistofna í Norður-Atlantshafi. Jafnframt var rætt um samning um nýtingu fiskistofna í Norður-Íshafi sem verður staðfestur af ráðherrum ríkjanna í Ilullisat í Grænlandi í byrjun október. Loks var rætt um tvíhliða fiskveiðisamning Íslands og ESB og framtíð hans.“

Undir lok ráðstefnunnar var tilkynnt að næsta ráðstefna sjávarútvegsráðherra Norður-Atlantshafsins muni fara fram á Íslandi á næsta ári.