Í samræmi við heimild í lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að styrkja búseturéttarhafa um 95% af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Er gripið til þessarar lausnar eftir árangurslausar viðræður milli Fasteignafélagsins Þórkötlu og húsnæðissamvinnufélagsins Búmanna á undanförnum vikum um útfærslu á kaupum á búseturétti í íbúðarhúsnæði Búmanna í Grindavík. Voru viðræðurnar í samræmi við ákvæði laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

„Þrátt fyrir vilja beggja aðila náðust samningar ekki um kaup félagsins á búseturéttinum,“ segir á vef stjórnarráðsins. Fasteignafélagið Þórkatla hafi því, í samráði við Búmenn, leitað til fjármála- og efnahagsráðuneytið og lagt til að málefni búseturéttarhafa í Grindavík yrðu leyst með vísan til III. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 16/2024. Í því er ráðherra veitt heimild til þess að styrkja þá búseturéttarhafa sem falla undir gildissvið laganna.

Losna strax undan langtíma skuldbindingum

„Eftir mat á tillögu félagsins hefur fjármála- og efnahagsráðherra ákveðið að búseturéttarhöfum í Grindavík verði veittur styrkur sem nemur 95 prósent af framreiknuðu búseturéttargjaldi búseturéttarhafa, líkt og heimild er fyrir í áðurnefndum lögum. Samhliða því munu Búmenn bjóða búseturéttarhöfum í Grindavík að segja upp búseturétti sínum án uppsagnarfrests og losna þar með undan þeim langtíma skuldbindingum sem í honum felast,“ segir á stjr.is.

Þá kemur fram að áætlað sér að um 30 íbúðir muni falla undir gildissvið úrræðisins. Reiknað sé með að kostnaður nemi um 275 milljónum króna fyrir allar 30 eignirnar og að sú upphæð komi úr ríkissjóði.

Að endingu kemur fram að Fasteignafélagið Þórkatla muni annast samskipti við umsækjendur. Stefnt sé að því að þessi mál komi til framkvæmda seinni hluta ágústmánaðar.