Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur tekið ákvörðun um heildarafla fyrir tiltekna nytjastofna fiskveiðiárið 2015-2016. Þriðja árið í röð fylgir ráðherra tillögum Hafrannsóknarstofnunnar. Þá hefur ráðherra einnig gefið út reglugerð um stjórn makrílveiða fyrir komandi vertíð.
Heildarafli í makríl verður 173 þúsund tonn og hlutfallsleg skipting hans á milli flokka er með sama hætti og í fyrra.
Enn á eftir að ákveða aflamark í stórum uppsjávartegundum
Í frétt atvinnuvegaráðuneytisin s segir að alls gæti verðmætaaukning vegna aukins heildarútflutnings sjávarafurða vegna aflaaukningar numið 7-8 milljörðum króna, haldist afurðaverð svipað því sem af er ári.