Polar Amaroq, hið nýja uppsjávarveiðiskip East Greenland Codfish, mun halda til kolmunnaveiða á gráa svæðinu við Færeyjar á föstudag. Kolmunnakvóti skipsins er um 4.000 tonn og er áhugi fyrir því að láta vinna aflann til manneldis að því er haft er eftir Geirs Zoëga skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar.
East Greenland Codfish er eina grænlenska fyrirtækið í sögunni sem gert hefur út skip til uppsjávarveiða en áður en það festi kaup á Polar Amaroq átti það uppsjávarveiðiskipið Eriku. Árið 2012 festi grænlenska útgerðarfyrirtækið Polar Seafood kaup á 66% hlut í East Greenland en eins og kunnugt er á Síldarvinnslan þriðjung í félaginu.
Nýlega var haft eftir stjórnarformanni Polar Seafood í fjölmiðlum að félagið hygðist auka vægi veiða og vinnslu á uppsjávarfiski á komandi árum enda væri makríll farinn að ganga inn í grænlenska lögsögu og líklegt væri að síld myndi einnig gera það í framtíðinni.
Geir Zoëga skipstjóri á Polar Amaroq staðfestir að vart hefði orðið við makríl í grænlenskri lögsögu í fyrra og þar hafi Erika veitt um 2.500 tonn. Kaupin á Polar Amaroq munu meðal annars þjóna þeim tilgangi að gera mönnum auðveldara að fylgjast með þróuninni hvað uppsjávarfiska varðar innan grænlenskrar lögsögu.
Í Polar Amaroq er tækjabúnaður til fiskirannsókna og unnt er að koma fyrir fellikjöl eins og er í hafrannsóknaskipum. Þá er rannsóknastofa einnig í skipinu.