Verð á pillaðri rækju frá Íslandi hefur hækkað um 25% á hálfu ári og meðaltalshækkun síðustu sjö ára er um 12% á ári.
Mikið hefur dregið úr veiðum á kaldsjávarrækju undanfarin ár. Það stefnir í mikla minnkun rækjuafla við Grænland og líklegt er að sama verði uppi á teningnum hjá Kanadamönnum.
Yngvi Óttarsson, framkvæmdastjóri hjá Íslensku útflutningsmiðstöðinni, segir að útlit og horfur í Barentshafi og við Ísland séu hins vegar betri en áður hefur verið.
Sjá nánar í Fiskifréttum.