Almennum byggðakvóta hefur verið úthlutað til 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Þrjú byggðarlög fá 300 þorskígildistonna hámarksúthlutun á fiskveiðiárinu 2021/2022 og sextán byggðarlög fá 15 þorskígildistonna lágmarksúthlutun.

Úthlutunin byggir á reglugerð nr. 919/2021 um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2021/2022, og upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2011/2012 til fiskveiðiársins 2021/2022.

Á heildina litið verða óverulegar breytingar á því magni í þorskígildistonnum sem einstök byggðarlög fá úthlutað. Þó eru það alls átta byggðarlög þar sem úthlutun dregst saman milli ára sem skýrist einkum af samdrætti í heildarúthlutun milli ára. Samdráttur í heildarúthlutun frá fiskveiðiárinu 2020/2021 nemur 179 þorskígildislestum.

Byggðarlög með færri en 400 íbúa fá 3.219 þorskígildistonnum úthlutað og byggðarlög með fleiri en 400 íbúa fá 1.404 þorskígildistonnum úthlutað.

Eftir landshlutum þá skiptist úthlutun fiskveiðiársins 2021/2022 með eftirfarandi hætti:

Austurland: 779 tonn

Norðurland eystra: 1.031 tonn

Norðurland vestra: 394 tonn

Suðurland: 170 tonn

Suðurnes: 155 tonn

Vestfirðir: 1.812 tonn

Vesturland: 282 tonn

Sundurliðun á úthlutun byggðakvóta til einstakra byggðarlaga 2021/2022.