Sumarleyfi tveggja starfsmanna Hafrannsóknastofnunar tók óvænta stefnu í júlí þegar þeir urðu vitni að mjög sérstöku atferli grindhvala. Frá þessu segir á vef stofnunarinnar.

Fram kemur að starfsmennirnir voru þann 16. júlí í sumar í kajakferð í innanverðum Breiðafirði, fram af mynni Álftafjarðar, þegar hópur grindhvala kom syndandi að þeim.

Tuttugu hvalir í hópi

„Um 20 dýra hóp var að ræða. Dýrin bárust með aðfallsstraumi um sund inn fyrir eyjaklasa í mynni Hvammsfjarðar. Í samráði við sérfræðing á Náttúrustofu Vesturlands var tekin ákvörðun um að fylgjast með atferli og afdrifum dýranna, ekki síst vegna þess að árið 2020 strönduðu og drápust 10 grindhvalir í Álftafirði og 50 á Löngufjörum og því voru taldar líkur á að eitthvað slíkt gæti gerst,“ segir í færslunni.

Hvalirnir eru sagðir hafa haldið sig mjög þétt og blásið mikið.

Mikil samskipti milli hvalanna

„Þeir virtist hafa mikil samskipti sín á milli með snertingu og hátíðnihljóðum og einstaka sinnum komu hressileg prumphljóð. Yfirleitt voru einn eða nokkrir hvalir með höfuðið vel upp úr sjónum þegar þeir voru í hnapp,“ segir á hafogvatn.is.

„Öðru hverju var eins ókyrrð kæmi á hópinn og þeir syntu með látum og buslugangi fram og til baka og það atferli endaði svo með því að hvalirnir syntu í hringi á litlu svæði og enduðu svo aftur saman í hnapp,“ segir áfram. Fylgst hafi verið með hvölunum allan daginn og fram á kvöld.

Vonandi óhultir

„Þá hélt hópurinn sig enn í straumnum og barst nú með útfallinu að sundi milli Gvendareyja og Ólafseyjar sem eru í mynni Hvammsfjarðar. Dagana eftir var róið víða um eyjarnar í mynni Hvammsfjarðar en sem betur fer varð ekki vart við dýrin. Enn hafa engar fregnir borist af reknum grindhvölum í Breiðafirði þannig að vonandi hafa þeir náð að koma sér í dýpri sjó eftir þessa hættuför.“