Bandaríska fyrirtækið Pacific Seafood Group hefur sett á markaðinn nýja afurð í flokki fisks með brauðhjúp. Þar er gengið alla leið í hollustu og umhverfisvernd.
Um er að ræða þorskstykki og í deigið sem hjúpar fiskinn er notaður bjór en ekkert vatn. Segja talsmenn fyrirtækisins að þeir séu fyrstir til að nota ósvikinn bjór í slíka afurð.
Varan er kynnt sem fullkomin hollusta því að hráefnið er þorskur sem veiddur er á sjálfbæran hátt, engin viðbætt aukefni eru notuð við framleiðsluna og bjórinn er að sjálfsögðu glútenlaus!
Sjá nánar á vef SeafoodSource .