Matvælastofnun hefur sent frá sér fréttatilkynningu varðandi slysasleppingu á eldislaxi úr sjókví Arnarlax í Tálknafirði í byrjun mánaðar. Þar kemur fram að orsök tjóns og umfang slysasleppingarinnar liggja ekki fyrir en fimm fiskar úr sjókvínni hafa veiðst í net eftir atvikið fram til þessa.

Matvælastofnun barst tilkynning frá Arnarlaxi um fisk utan kvíar og gat á nótarpoka sjókvíar fyrirtækisins að Laugardal í Tálknafirði að morgni 6. júlí. Við eftirlit Matvælastofnunar 9. júlí var farið yfir atburðarás atviksins, búnað og viðbrögð fyrirtækisins.

Ljóst er að slysaslepping hefur átt sér stað en umfang sleppingar er óljóst. Meðalþyngd fiska í umræddri kví er 3,5 kíló og voru um 150.000 fiskar í kvínni.

Fiskistofa stjórnar veiðum vegna slysasleppinga og hafa 5 fiskar veiðst í net eftir slysasleppinguna. Viðbrögð fyrirtækisins voru samkvæmt skráðum verkferlum þess. Gert var við göt eftir að þau uppgötvuðust og viðbragðsáætlun vegna slysasleppingar virkjuð.