Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að þorskkvótinn á næsta fiskveiðiári verði 130 þúsund tonn.

Það sé í samræmi við samþykktir ríkisstjórnarinnar í fyrra.

Þetta kom fram í viðtali við ráðherrann í fréttum Ríkisútvarpsins í gær.

Einar sagði jafnframt að hann myndi í lok vikunnar kynna tillögur sínar um kvóta annarra fisktegunda