Örn Erlingsson útgerðarmaður hefur selt fyrirtæki sitt Sólbakka ehf.

Kaupunum fylgir snurðvoðarbáturinn Örn GK ásamt rúmlega 1.000 þorskígildistonna  kvóta. Kaupandi er Stakkavík í Grindavík.

Örn segir í samtali við Fiskifréttir að grundvöllur útgerðar án vinnslu sé brostinn. Þegar gjöld og álögur á rekstrinum til hins opinbera eru orðnar slíkar að það bitnar á viðhaldi og vexti útgerðarinnar sé gamanið farið úr þessu.

„Þá er maður kominn í vinnu fyrir hið opinbera,“ segir Örn.