Hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) komu þetta árið í hlut Bláma á Vestfjörðum. Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma, tók við þeim á ársfundi SFS 24. mars síðastliðinn.

„Við hjá Bláma erum bæði stolt og þakklát,“ sagði Þorsteinn á ársfundinum. „Okkar meginhlutverk er býsna einfalt. Við eigum bara að styðja við orkuskipti í sjávartengdri starfsemi.“

Samstarf

Blámi er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðarstofu. Bláma er ætlað að leiða saman einstaklinga og fyrirtæki sem geta unnið saman við það að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum.

„Við hjá Bláma höfum unnið að spennandi verkefnum tengdum sjókvíaeldi, til dæmis landtengingum og rafhlöðukerfum. Það styttist í að að við förum að sjá fiskeldisbáta með stórum rafhlöðum og öflugar landtengingar fyrir brunnbáta,“ sagði Þorsteinn.

Metanól og ammóníak

„Hvað hefðbundin sjávarútveg varðar þá er hægt að keyra skipavélar sem brenna metanóli og verið að vinna að einu slíku verkefni á Íslandi og á næsta ári verður hægt að fá vélar sem keyra á ammoníaki.“

Hann segir það hafa mikla þýðingu að fá þessi verðlaun. Það sýni að Blámi sé á réttri leið og haldið verði áfram að vinna að raunverulegum verkefnum.

„Það er ánægjulegt að sjá og finna að sjávarútvegsfyrirtækin eru opin fyrir að skoða tækifæri á sviði vistvænna orkugjafa. Við megum ekki gleyma að þessi fyrirtæki hafa verið framarlega í að minnka orkunotkun, hvort sem það er með stærri skrúfum, sparneytnari vélum eða léttari hlerum.“

Á síðasta ári komu hvatningarverðlaun SFS í hlut Sjávarútvegsháskólans á Akureyri.