Opnað hefur verið fyrir umsóknir um strandveiðileyfi. Fiskistofa segir umsóknarfrest vera til miðnættis 22. apríl og að ekki sé ekki hægt að sækja um eftir þann tíma.
Á vef Fiskistofu segir að strandveiðar hefjist þriðjudaginn 5. maí næst komandi. Um veiðarnar gildi reglugerð um strandveiðar um veiðarnar ásamt öðrum lögum og reglum sem við eiga.
Eftirfarandi er af vef Fiskistofu um umsóknarferlið:
- Sótt er um strandveiðileyfi í gegnum stafrænt umsóknarkerfi á Ísland.is.
- Einstaklingur sem er skráður útgerðaraðili eða prókúruhafi útgerðaraðila getur sótt um leyfi með rafrænum skilríkjum.
- Hægt er að velja upphafsdag strandveiða.
- Greitt er fyrir leyfið í umsóknarferlinu og er mikilvægt að klára umsóknarferlið með því að ýta á áfram eftir að greitt hefur verið fyrir leyfið.
- Við gildistöku er leyfið sent í pósthólf viðkomandi á Ísland.is.
- Afgreiðsla leyfisumsókna getur tafist ef Fiskistofu skortir upplýsingar um eigendur skipa og útgerðaraðila.
- Hægt er að sækja um leyfi þó að skip sé ekki með haffæri en leyfið er veitt þegar haffæri er komið á skipið og öll önnur skilyrði uppfyllt.
Allar helstu upplýsingar um veiðarnar má finna á vef Fiskistofu í grein um strandveiðar.
Mikið álag er á starfsmönnum stofnunarinnar í upphafi strandveiðivertíðar og beinum við því til aðila að senda erindi og fyrirspurnir varðandi strandveiðar á tölvupóstfangið [email protected] fremur en að hringja.
Fyrirspurnir um skil aflaupplýsinga skal senda á tölvupóstfangið: [email protected].