Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Rætt er við Jón Valgeirsson skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

„Við lögðum af stað frá Akureyri eftir að hafa verið þar í slipp og fórum austur fyrir land. Við leggjum nú áherslu á ýsuveiði en það eru býsna margir sem gera það um þessar mundir. Við urðum lítið varir við ýsu fyrr en við komum á Hvalbakssvæðið. Þar fengum við þokkalegustu ýsu, dálítið þorskblandaða. Túrinn tók tæpa viku og það var gott veður allan tímann. Aflinn þarna við Hvalbakinn var bestur yfir daginn en það var heldur minna að hafa á næturnar. Staðreyndin er sú að það fiskast almennt ekkert sérstaklega vel um þessar mundir en það getur breyst eins og hendi sé veifað,” sagði Jón.