Útgerðarfélagið 2Fisk AS í Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það eru feðgarnir Tor Øyvind og Øyvind Bolle sem standa að útgerðinni. Tor Øyvind verður skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn heitir Olavjenta. Hann er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 400 hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad og er útbúinn með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða og kemur veiðibúnaðurinn frá Noregi. Í lest bátsins komast fyrir 15 stykki af 380 lítra fiskikörum.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Í honum er stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar og í bátnum er salerni með sturtu.

Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur þegar hafið veiðar. Í fyrsta róðri fengu þeir feðgar 5,1 tonn í fyrsta róðri.