Heildaraflinn nam alls 83.000 tonnum í nýliðnum október samanborið við 67.000 tonn í sama mánuði í fyrra. Þetta er 24% aukning milli ára sem stafar eingöngu af meiri uppsjávarafla, nánar tiltekið síld.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 1.400 tonn frá október 2009 og nam um 38.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 17.000 tonnum, sem er aukning um rúm 900 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam rúmum 4.500 tonnum, sem er um 1.800 tonnum minni afli en í október 2009.

Um 4.800 tonn veiddust af ufsa, sem er um 1.000 tonnum meiri afli en í október 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 400 tonn og nam um 6.400 tonnum. Nær sama magn var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 5.300 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 43.00 tonnum, sem er um 17.200 tonnum meiri afli en í október 2009. Var það líkt og árið áður nær eingöngu síld.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands, HÉR